Alexandra 10 ára í dag

Alexandra

Þá er þessi prinsessa bara orðin 10 ára gömul en mér finnst eins og það hafi gerst í gær að ég þurfti að hætta við að horfa á videomynd sem ég hafði leigt mér að kvöldið 20.desember árið 1998 og bruna þess í stað með Erian á sjúkrahúsið en hún missti vatnið akkúrat þegar ég var nýsestur niður í sófann og búinn að ýta á play.  Myndin sem ég ætlaði að horfa á heitir Wag the dog og enn þann dag í dag hef ég ekki náð að horfa á þessa mynd af einhverjum sökum.

En stelpan var jólagjöfin okkar árið 1998 og Erian var komin með dúlluna heim bara sólarhring síðar, ekkert verið að liggja inná sjúkrahúsi of lengi því jólin voru jú handan við hornið.

Alexandrö er margt til lysta lagt, hún hefur yndi af því að teikna og föndra sem og að spila á hljóðfæri.  Við vorum einmitt á tónleikum á föstudaginn þar sem þau öll spiluðu, altso öll nema Elísa sem er ekki enn farin að læra að spila á hljóðfæri.  Þau stóðu sig öll frábærlega og gaman að heyra hvað þau eru orðin flink að spila

Elsku Alexandra, til hamingju með 10 ára afmælið frá okkur öllum hér heima, við elskum þig og eigðu frábæran afmælisdag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju Alexandra óskum vid thér öll "Larssonsins" hérna i Sviarikinu. Kramar Tórunn

Torunn Larsson 21.12.2008 kl. 13:54

2 Smámynd: María Guðmundsdóttir

já og til hamingju frá okkur Andersons hér i danmørkinni  vonandi er svaka stud i veislunni, fullt af pøkkum og køkum  

knús og krammar hédan frá øllum

María Guðmundsdóttir, 21.12.2008 kl. 15:52

3 identicon

Til hamingju með stelpuna .Kveðja Ella Maja

Elin Maria 21.12.2008 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Uþþuþvuzz!

Höfundur

Einar Sveinn Guðmundsson
Einar Sveinn Guðmundsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • golf og grill með kennurum 033
  • 101_0132
  • 17.júní 2004
  • 17.júní 2004
  • 562284 473572602656489 100000112607813 2014421 611042547 n

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 821

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband