Fimmtudagur, 6. ágúst 2009
Lok lok og læs?
Ég er að spá í að loka þessu bloggi, flestir á facebook og svo er ég kominn með íslenskt símanúmer svo það er bara hægt að bjalla (4960373).
Af okkur er annars allt gott að frétta, vinnan bíður handan hornsins, byrja á nýja vinnustaðnum mánudaginn 10.ágúst. Ekki nema rúmlega 50% staða en betra en ekkert. Erian að byrja í sinni praktík og hún tekur lokapróf frá skólanum nú í lok ágúst. Svo bara sjáum við hvar við stöndum þegar hún er búin í praktík í lok febrúar. Okkur langar að vera hér áfram en það stendur og fellur með því að við bæði höfum einhverja vinnu, vinnu sem dugar til að framfleyta fjölskyldunni.
Okkur líður vel hér í Köben, erum orðin nokkuð vön borgarlífinu og kunnum bara vel að meta það. Krakkarnir hafa aðlagast nokkuð vel og við heyrum ekki á þeim að þau vilji flytja heim. Okkur óar við tilhugsuninni einni saman að flytja heim; til þessa Kríslands þar sem umræðan er endalaus neikvæð og í raun er þetta blessaða land á hausnum. Við viljum gjarnan vera hér áfram eftir að Erian lýkur námi, ef þess er þá bara nokkur kostur. Ekki svo margt sem við söknum, jú Erian saknar sinna vinkvenna og ég sakna pabba, meira er það nú varla. Krakkarnir sakna einskis þannig lagað en þau nefna það títt að þau eiga fullt af dóti í íbúðinni á Silfurtúni sem þau gjarnan vilja hafa hér!
Nóg um það. En eins og ég sagði þá er ég að hugsa um að loka þessari síðu eða alla vega hætta að blogga um óákveðinn tíma, þeir sem eitthvað vilja af mér og okkur heyra er bent á facebook eða símanúmerið hér að ofan.
Bestu kveðjur
Einar Sveinn og co
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 18. júlí 2009
Hvað hefur á dagana drifið?
Góð spurning, helv.. langt síðan ég bloggaði síðast, ár og dagur nánast.
Vinna: Frekar lítið að gera hjá mér í júní, ekki nema tæpir 70 tímar en júlí hefur verið skárri, 90 tímar verða það þennan mánuðinn sýnist mér. Var með fulla vinnuviku þessa vikuna og næsta vika er fullbókuð líka. Kláraði síðustu vakt í bili á Filip Sogns í gær, kvaddi liðið með pomp og prakt og leystur út með gjafabréfi frá Madas (sem ég gaf Erian auðvitað enda kellingabúð þessi Madas!) og einum kaffipoka; vinnufélögunum finnst ég drekka full mikið kaffi og ákváðu því að gefa mér einn í nesti.
Næstu viku er ég svo á Emdrup Søgård, síðasta vika þar líka en þó á ég eina vakt þann 30. júlí sem verður þá sú síðasta, eiginlega sem betur fer því mér hefur aldrei líkað sérstaklega vel á Emdrup. Hins vegar hefur verið frábært að vera á Filip Sogns og þar var manni vel tekið.
Ástæðan fyrir því að ég er að hætta vikarstörfum á þessum stöðum er sú að ég er búinn að ráða mig í rúmlega hálft starf við Vidarskolen í Gentofte. Kem til með að vinna þar alla daga frá 12-16, föst staða á SFO (skole fritids ordning) sem er svona eins og skólaselin heima; krakkarnir koma þangað þegar skóladegi lýkur og eru frá 12-16, krakkar í 1.-4.bekk og skilst mér að ég verði aðallega með guttana í 3.-4.bekk. Verður spennandi, kem til með að þjösna drengjunum út í alls kyns boltasparki og ef rignir þá má fara inn og kenna þeim að tefla (ekki föndra ég með þeim, svo mikið er víst, ekki mín deild!!)
En bara frábært að vera kominn með eitthvað fast, það er ekki hlaupið í vinnu hér því ég hef verið leitandi í 6 mánuði og fyrst núna sem eitthvað fast er í hendi. Hefði auðvitað viljað fá fleiri tíma en hugsanlega er hægt að nota mann í einhverjum afleysingum á morgnana, t.d. í stuðningskennslu, kemur í ljós síðar hvernig það verður.
Krakkarnir eru í sumarfríi, dunda sér hérna heima við og oftast dugleg að vera úti að leika. Elmar verður áfram í sínum skóla næsta haust sem og Gummi en Alexandra er byrjuð í skóla á Íslandsbryggju í dönskum bekk. Hún var hálfkvíðin að byrja en svo gekk allt vel og ég held að hún verði bara ánægð í nýja skólanum.
Erian er í sumarfríi líka frá sínum skóla en byrjar aftur síðustu vikuna í júlí. Hún er pun... sveitt í prófundirbúningi, les eins og bandóð á hverjum degi enda lokaprófin handan hornsins í ágústmánuði. Svo byrjar hún í praktík 1.september og er búinn að finna praktikplads; Exuviance held ég það heiti og er svona klinik. Hún er lukkuleg með það, kemur til með að vinna þriðjudag-föstudags frá hálf tíu til sjö og svo annan hvern laugardag en alltaf frí á mánudögum.
Við höfum því ekki tök á að gera mikið eða víðreist í sumarfríinu, ég er jú ekki í sumarfríi og það er ströggl líka peningalega séð að vera námsmaður og ég með einungis hlutastarf. Verður vonandi betra næsta sumar og við getum þá kannski leyft okkur að gera eitthvað meira í sumarfríinu.
Við höfum bara haft það náðugt í blíðunni hér heima, farið á ströndina, kíkt í bæinn og fórum svo stuttan túr til Harlev og vorum þar 5 nætur í góðu yfirlæti.
Ís í góða veðrinu.
Í Harlev var margt brallað en við notuðum tímann aðallega í að hafa það huggulegt í góðum félagsskap. Brakandi blíða fyrstu dagana og þá fórum við m.a. til Ry þar sem er vatn og skemmtileg aðstaða til að busla, synda og liggja í sólbaði.
Hér er verið að fá sér næringu eftir sprikl og boltaleik í Ryvatni.
Við heimsóttum tívolíið í Aarhus á mánudegi í ágætis veðri en þó rigndi á okkur eins og hellt væri úr fötu um miðjan daginn. En það kom ekki að sök, það stytti upp og við keyptum regnslár sem björguðu flestum fyrir horn. Vorum örugglega rúma 5 tíma í tívolí, tókum með okkur grillaðar pylsur sem við gátum svo skellt aftur á grill sem er á staðnum og hitað upp pylsur og brauð. Krakkarnir skemmtu sér konunglega, sumir djarfari en aðrir að skella sér í tækin en í stuttu máli þá var þetta frábær dagur og í fyrsta skipti sem okkar börn fara í tívolí.
Prinsessurnar í hringekjunni
Við þetta vatn fengum við okkur að borða, þetta er í tivolí nota bene og hér var hægt að sigla um á hvítum svönum.
Að síðustu langar mig að minnast á það að Elísa er útskrifuð úr leikskóla og bíður nú eftir skólabyrjun í ágúst.
Hér er ein mynd tekin við útskriftina
En sem sagt, vinna næstu viku hjá mér en svo lítur út fyrir að ég verði í fríi til 10.ágúst þegar ég hef störf við Vidarskolen (þetta er skóli sem starfar eftir hugmyndafræði Rudolf Steiner, ef einhver kannast við það). Þannig að ég fæ einhverja frídaga á næstunni.
Það eru góðar líkur á að María og co komi hér í lok mánaðar því fótboltasjúklingurinn Mikael á að keppa hér á stóru móti og vonum við sannarlega að familían geti séð sér fært að rúlla hingað niður eftir, fer víst eftir peningum eins og alltaf, krossum putta og hvað eina, alltaf gaman að hittast.
Og eitt enn áður en ég set punktinn á þetta. Ég er búinn að panta smartsíma hjá tal, á græjurnar og þarf bara að opna númerið aftur. Var með þetta í Harlev á sínum tíma svo innan tíðar er hægt að hringja í mann hér á íslenskum taxta og við getum hringt frítt heim; nauðsynlegt að vera með þetta þegar mann býr í úttlandinu.
Jæja, bestu kveðjur, hér rignir svo það verður bara næs að hanga inni í dag, held að SAS ligan sé að byrja svo kannski kíkir maður á leik í sjónvarpinu. Svo er reyndar planið að fara með gaurana á leik með FCK á Parken, jafnvel næstu helgi gegn Køge, ef fjárhagur leyfir selfølig!
Einar Sv, Erian og börn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 22. maí 2009
Móðan mása
Hef verið latur við þetta blogg; sit nú við tölvuna og ákvað að setja nokkar línur á "blað". Hef svo sem ekkert að segja og ætla bara að láta ráðast hvað ég hripa niður.
Föstudagur í dag og allir í fríi á þessu heimili. Tókum einn rúnt í IKEA og keyptum smotterí, alltaf jafn skemmtilegt í IKEA. Veit nú ekki hvað við vorum lengi að taka rúntinn þarna, villtumst ekkert eins og sumir en eftir þessa ferð þá var Bilka tekið í nefið líka. Sem sagt dagur sem systir mín kæra hefði fílað í botn;)
Er svona smám saman að komast einhver heimilismynd á þetta heimili okkar. Lengi vel var hér ekkert nánast en nú er kominn sófi, eldhúsborð og heilt loftljós beint fyrir ofan það! Svo keyptum við svona verkamannastandlampa í dag og þá er þetta bara að verða nokkuð gott. Á meðan maður er með eitthvað að sofa á, borð til að éta við, tölvu og sjónvarp þá er maður í góðum málum.
Ég hef haft nokkuð gott að gera bæði í apríl og maí, er á meðan er. En þetta er auðvitað ekki ákjósanlegt atvinnuástand, næsta vika gæti víst orðið þannig að maður sæti bara á rassgatinu heima og sinnti "húsmóðurstörfum". En, svona er þetta, þetta reddast allt einhvern veginn og í raun er ég að fíla það ágætlega að vera vikar þó ég vildi alltaf fá fleiri tíma í viku hverri.
Verð að minnast aðeins á ferðalagið til Aarhus í byrjun mánaðar. Fröken Eva var að fermast og við fórum uppeftir auk pabba og Jóhönnu. Helgin var frábær í alla staði, fermingin gekk eins og í sögu; barnið fermdist og það var jú stóra málið. Ég skildi yfir höfuð ekki rassgat í því sem sagt var í kirkjunni en kannski var það vegna þess að ég nennti nú ekki að sperra eyrun of mikið því það tekur svolítið á þetta danska hrognamál. Maður verður, eða ég í það minnsta, að hafa athyglina í lagi þegar ég er að reyna að skilja hvað bauninn segir, tekur bara mikla orku stundum öll þessi einbeiting sem maður þarf og athygli.
En hvað um það, hélt ég hefði verið að tala um helgina í Aarhus. Hundum og köttum kom vel saman sem og mannfólki og fór vel um alla. Veðrið var frábært og félagsskapurinn líka; alltaf gaman að hitta ættingjana því það er ekki of oft sem svona hittingur á sér stað. Sumir eru alltaf eins, t.d. bræðurnir Erlingsson, láta alltaf eins og "fífl" báðir tveir (allt í góðu og vel meint bræður!), Þórunn sjálfri sér lík og alltaf jafn elskuleg og Erla varla deginum eldri en sextug! En sem sé, þetta var bara allt svo skemmtilegt og krökkunum leiddist nú ekki að hitta frændsystkinin í Aarhus; Alexandra hafði á orði þegar við vorum komin aftur til Köben að hún vildi bara flytja aftur til Harlev, vildi vera í námunda við gemlingana hennar Maríu!
Jæja, er þetta ekki bara að verða helvíti gott, ég nenni hreinlega ekki meiru; spurning um að setja þessa bloggsíðu á "afsakið hlé" um óákveðinn tíma?!
En sjáum hvað setur, framundan eru spennandi tímar því næstu helgi, hvítasunnuhelgi, koma að öllum líkindum familien Anderson í heimsókn til okkar og er þegar orðinn mikill spenningur á þessu heimili eftir þeirri heimsókn. Svo er sumarið auðvitað löngu komið hér í Dk en þó er einhver rigningarsuddi í honum akkúrat núna og það hafa gert vart við sig þrumur og eldingar annað veifið.
Gleðilegt sumar
Einar Sveinn, Erian og co
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 16. apríl 2009
15.apríl-Hilli bakari hefði orðið 95 ára
Var alveg búinn að steingleyma að afi Hilli bak átti afmæli (takk Hanna fyrir að minna mig á þetta) í gær og hefði orðið 95 ára. Ég er nú ekki vanur að klikka á svona afmælum en mér til afsökunar þá var ég að vinna langan dag í gær og þessu var alveg stolið úr mér.
Afi dó þegar ég var 9 ára gamall, árið eftir að við fluttum frá Seyðisfirði og á Akranes.
Ég man enn þó nokkuð eftir kallinum, svona minningabrot en auðvitað hafa minningarnar dofnað með árunum, það er jú langt um liðið.
Í nokkrum orðum þá man ég einna helst hvað hann var rólegur og fámáll, kjaftaði ekki frá sér allt vit hann Hilli bak.
Afi var mikill áhugamaður um fótbolta (hann fór á völlinn þegar Huginn spilaði man ég og hann missti ekki af fótbolta í sjónvarpinu held ég þegar t.d. enski boltinn var á skjánum, held það hafi verið á sunnudögum).
Afi æsti sig aldrei þó amma ætti slæman dag, eða daga og aldrei var hann pirraður yfir okkur krökkunum sem héngum niðri í bakaríi lon og don, sníkjandi þetta og hitt og hefur örugglega verið töluverð truflun af okkur á stundum.
Ég man vel eftir því að fá að keyra með afa í Fíatinum hvíta,út á bryggju til Adda Halla eða út í Stál því afi var að stússast með einhverjar vörur, skrifa undir reikninga eða hvað það var sem hann var að stússast, eitthvað snérist þetta um vörur sem hann var að fá með skipunum.
Ég man vel eftir því þegar ég heimsótti kallinn um miðja nótt á bolludegi, bankaði bara á hlerann hjá honum um 4 leytið og bað um að fá að hjálpa til. Þetta var árið 1975, síðasti bolludagur okkar á Seyðis og ég hafði sagt afa að ég myndi koma og hann svarað "allt í þessu fína, komdu bara". Kallinn hefur auðvitað ekki átt von á að ég myndi svo mæta galvaskur um miðja nótt en til þess fékk ég leyfi hjá mömmu og pabba, vaknaði sjálfur og arkaði í snjósköflum út í bakarí frá Steinholti.
Ég man vel eftir öllum happdrættismiðunum sem afi var með í skrifborðsskúffunni sinni, efast um að hann hafi nokkru sinni unnið á þessa miða en helv fannst mér hann eiga marga miða.
Ég man líka vel þegar pabbi kom heim úr vinnu að morgni eða undir hádegi 27.júlí 1977 til að segja mömmu að afi væri dáinn og ég man enn mjög vel eftir deginum þegar afi var jarðaður.
Afi var bara góður kall sem var gott að vera nálægt, ekki mikið sagt þegar maður var með honum en hann hafði bara svo þægilega nærveru og fann alltaf eitthvað mikilvægt fyrir mann að gera; mér fannst ég alltaf vera að gera eitthvað gagn þegar ég var að "hjálpa" afa með baksturinn og tilheyrandi.
Elsku afi, til hamingju með daginn, í gær, betra seint en aldrei!!
afi í bakgrunni, alltaf í bakaragallanum, ég og tvíbbarnir í forgrunni
afi og amma í kaffi hjá okkur blokkinni á Seyðis, sá gamli í bakaríisgallanum en reyndar líka í lopapeysu, en ekki hvað!
ætli afi hafi ekki gleymt að setja í sig fölsku tennurnar á þessari mynd, þær hafa kannski legið í bleyti akkúrat þegar myndir var tekin!
myndarlegur á yngri árum, Eini er glettilega líkur pabba sínum að mínu mati.
mér þykir mjög vænt um þessa mynd, synd að amma skuli endilega hafa þurft að góna í gólfið þegar smellt var af.
að lokum þessi hér, þarna er afi yngstur í sínum systkinahópi, situr á kné móður sinnar, því hægra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 10. apríl 2009
Föstudagurinn langi
Upp er runninn lengsti dagur ársins, eða hvað? Hér í denn var föstudagurinn langi alla vega afar langar að manni fannst og afar heilagur, ekkert sjónvarp, engin tölva, ekki neitt nema bara fara út og leika sér; ekki einu sinni opin sjoppa hvað þá meira.
En nú er öldin önnur, nóg að glápa í imbanum, tölvan alltaf í gangi og flestar sjoppur opnar, jafnvel heilu matvöruverslanirnar með opið í dag. En þó föstudagurinn langi hafi ekki verið par skemmtilegur í minningunni þá saknar maður samt stundum þessa einfaldleika sem áður var, maður var bara manns gaman og börn sem fullorðnir urðu að hafa ofan af fyrir sjálfum sér, engin afþreying í boði.
Hér í Köben er komið vor með stóru Vaffi, sól og blíða og hiti þetta 15-17 gráður. Við Erian kíktum á kaffi Norden á miðvikudaginn og rákum svo inn nefið á Hvids vinstue, fékk mér þar einn lítinn Tuborg til heiðurs skáldinu Hallgrímssyni. Það er virkilega huggulegt að labba einn rúnt á Strikinu og kíkja á kaffihús í góða veðrinu og fylgjast með mannlífinu sem iðar.
Við ætlum bara að hafa það notalegt hér heima, göngutúrar með hundinn og svo ætlum við einn labbirúnt niður á tjörn niðri í bæ og kíkja á fuglalífið sem og mannlífið.
Næstu viku verður nóg að gera hjá mér, vinna frá þriðjudegi til föstudags á vuggestuen Emdrup søgård. Þar er ég að vinna með krökkum sem eru á bleiualdrinum svo það eru endalausar skítableiur, mikið meira próramm en að vinna á børnehave eins og Filip sogns sem er ekki með vöggustofu. En dagurinn er fljótur að líða á svona vinnustað enda mikið að gera og ég er þakklátur fyrir hvern dag sem ég fæ í vinnu á meðan enga fasta vinnu er að fá.
Annars er það helst í fréttum að Elísa var að missa tönn, tönn númer tvö hjá henni og er hún afar stolt af því og segist vera orðin stór núna þar sem tennurnar eru farnar að fjúka og nýjar að koma í staðinn. Tannálfurinn kom auðvitað í heimsókn og færði dömunni 10 krónur og hún tilkynnti okkur hér snemma í gærkvöld að hún væri farin að sofa, yrði að sofna snemma svo tannálfurinn kæmi í heimsókn með pening og losaði hana við tönnina.
Jæja, nóg bull í bíli, læt fylgja hér nokkrar myndir sem við tókum í göngutúr um hverfið um daginn.
Bestu kveðjur, Einar Sveinn og familí
Systur
Blokkin okkar, við búum á fyrstu hæð
Stelpurnar í rennibrautinni
Erian með Lólu
Elísa í splitt
Flottur
Gummi
Elmar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 26. mars 2009
Hold da op
Nú er ég búinn að vera svo lengi í Danmörkinni að ég varð að hafa fyrirsögn á dönsku, orðinn svo illa sleipur í málinu
Hvað um það, danskan kemur smám saman og helst þegar maður nær nokkrum dögum í vinnu.
Ég hef haft töluvert að gera síðustu daga. Var á reynsluvöktum í hjemmeplejen í Dragør frá mánudegi til miðvikudags; vantar fólk í helgarafleysingar og ég bíð eftir að heyra nánar frá hjemmeplejen. Starfið er skemmtilegt en krefjandi og hreinlega erfitt á köflum. Gamla fólkið er mjög mismunandi statt, allt frá að vera ósjálfbjarga um alla hluti og yfir í að vera bara eldhresst og sjálfbjarga.
Leist ekki of vel á þetta eftir 2 fyrstu heimsóknirnar á mánudaginn; fyrst þurfti að hjálpa manni með parkinsons, skipta um bleiu, baða, klæða, og gera kappann kláran fyrir dagsenterið.
Næsti kúnni var sænsk kona, alveg skýr í kollinum og vel lesin en með krabbamein og ósjálfbjarga. Sú var með bleiu líka og búin að gera netta dellu og guð hjálpi mér skítalyktin í íbúðinni, lá við að maður labbaði bara rakleiðis út þegar lyktin kom æðandi í fangið, eða nasir (já já, mínar stóru lyktnæmu nasir!)
Næstu kúnnar voru minna mál, bara skipta á rúmi, tæma hlandkoppa, smyrja brauð, gefa pillur, jógúrt og hella upp á kaffi svo eitthvað sé nefnt, jú, þurftum að ryksuga og skúra hjá einni líka.
Dagurinn er fljótur að líða í svona vinnu en margt að muna og stundum erfitt að skilja eldgömul og tannlaus dönsk gamalmenni svo allt í allt þá er jobbið spennandi en um leið erfitt og tekur góðan tíma að venjast að komast inn í þetta.
Á morgun á ég svo að mæta á barnaheimilið Emdrup Søgård en þar vantar mann í afleysingar. Þar gæti verið möguleiki á þó nokkrum tímum í hverri viku og vonandi að það verði bara sem mest, vantar að hafa einhverja punkta fasta í vikunni og erfitt að þeysast á milli margra vinnustaða. Á þessum leikskóla er leikskólastjórinn karlmaður og hann treystir mér alveg til að leysa af á bæði vöggustofudeildinni og auðvitað líka á eldri deildinni; ekki málið að skipta um bleyju hjá smábörnum ef maður getur skipt um bleyju á níræðum gamalmennum, eða held ekki!
Síðustu helgi var þemadagur í skólanum hjá Gumma og Alexöndru og kíktum við í heimsókn. Krakkarnir höfðu verið að vinna að verkefnum sem öll tengjast medborgerskab, man nú ekki hvað það heitir á íslensku en svona umfjöllun um hvað það þýðir að vera partur af einhverju samfélagi í breiðum skilningi. Við hittum kennarana sem allir virðast elskulegir og þau eru öll mjög hrifin af krökkunum okkar, jerers børn er så sød og dejlig og eitthvað meira skjall sem ég man nú ekki í smáatriðum. En allt gengur þrusuvel og krakkarnir eru líka mjög sáttir í skólanum.
Vorið er ekki alveg komið en hlýtur að fara að láta sjá sig innan tíðar; reyndar verið hálfgerð skítatíð hérna að mér finnst síðustu daga, ískalt og norðanræpa, bara ala Suðurnesjasumarveður! Spáin segir að það eigi að hlýna svo ég bíð spenntur, þoli ekki þennan djöfuls kulda og vind.
Held að þetta sé að verða gott bara í bili, má ekki skrifa yfir mig hérna.
Bestu kveðjur úr kóngsins Köben,
Einar Sveinn og familí
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 17. mars 2009
Guðmundur Örn 12 ára í dag
(átti ekki aðra mynd á tölvunni, þessi var tekin um haustið 2007)
Merkisdagur í dag, 17.mars og Guðmundur Örn bara orðinn 12 ára.
Það gekk nú ekkert of vel fyrir Gumma að koma í heiminn, mamma hans missti vatnið á laugardegi en út vildi drengurinn ekki og fæddist ekki fyrr en á mánudeginum. Eitthvað kom hann fyrir tímann blessaður og var með gulu, svo í hitakassa mátti snúllinn dúsa til að byrja með.
Gummi er mikill áhugamaður um kvikmyndir, ætlar að verða kvikmyndagerðarmaður segir hann en önnur áhugamál eru tennis, spila tölvuleiki (en ekki hvað
) og svo hefur hann mjög gaman af að hlusta á tónlist og var að læra á trommur í haust.
Elsku Gummi okkar, við hér heima á Edvard Thomsens vej óskum þér hjartanlega til hamingju með afmælið og vonandi verður dagurinn rosalega skemmtilegur hjá þér.
Mamma, pabbi, Alexandra, Elmar Ingi og Elísa + Lóla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 8. mars 2009
Skothelt vesti!?
Var í Bilka og fjárfesti í einu svona, ekki annað hægt á þeirri vargöld sem hér ríkir
En án gríns þá er frekar dapurt ástand í borginni, "bandekrig" í fullum gangi, rokkarar á móti invandrörum, eða Hells Angels plebbar að drepa innflytjendur og svo öfugt. Þessar klíkur eru víst að berjast um dópmarkaðinn hér í borg.
Upp á síðkastið hefur það gerst að saklausir borgarar hafa verið skotnir og einhverjir drepnir, það er nýtt en nú fara menn mannavilt eða þá ráðast inn á kaffihús og hefja handahófskennda skothríð.
Síðustu helgi voru 2 drepnir, þar af einn á kaffihúsi hér á Amager og það í götu rétt hjá Lergravsparken þar sem við bjuggum á gistiheimili Margeirs.
Hér er samfélagið auðvitað í uppnámi og mikið um þetta talað, sérstaklega í blöðum og útvarpi. Á Norðurbrú loka verslanir fyrir myrkur og fólk þorir ekki út úr húsi að kvöldi til. Einn Færeyingur var þar staddur í síðustu viku, var á leið á tónleika og leitaði að bílastæði. Tveir ungir drengir, af erlendum uppruna, komu á reiðhjóli, héldu að þessi Færeyingur væri í rokkaragengi og hófu bara skothríð á bíl hans. Færeyingurinn slasaðist lífshættulega en er úr lífshættu. En sem sé, nú er mottóið hjá þessu liði orðið að skjóta fyrst og spyrja svo.
Við búum langt frá Norðurbrú en erum á Amager og þar var jú einn drepinn um daginn. Okkar nágrannar hljóma kunnuglega sumir. Ég brá mér út á svalir að kvöldi laugardags síðustu helgar og heyri þá mælt á ástkæra móðurmálinu: "Þegiðu Kári, þú ert nú meira helvítis fíflið." Kannski nær að segja að þetta hafi verið öskrað því óhljóðin bárust úr nærliggjandi blokk sem er þó töluvert frá okkur. Nú í okkar blokk má sjá á dyrabjöllu nöfn tveggja íslenskra manna, hef ekki rekist á piltana, en ágætt að vita að maður er í góðum félagsskap hérna hverfinu.
Annars gengur lífið orðið sinn vanagang. Ég er í afleysingum á leikskóla uppá Kastrupvej, hef verið að fá 2-3 daga í viku þar síðan 9.febrúar. Á viðtal á þriðjudaginn í leikskóla í Gentofte, þar vantar afleysingamann líka og væri helv gott að hafa 2 skóla til að leysa af í, þá nær maður ansi mörgum dögum held ég í hverri viku. Það er bara mjög erfitt að komast að hérna í vinnu, ég fékk t.d. þakkarbréf um daginn vegna stöðu sem ég sótti um og voru umsækjendur 336!!! Hef ekki séð svona tölur áður, alltaf verið svona frá 50-160 manns sem talað er um að hafi sótt um þessar stöður sem ég hef sótt um. Þannig að "vikar" er það eina held ég sem gefur sjéns vinnulega séð, svo er alltaf smuga að fá fasta vinnu upp úr því.
Við fjárfestum í luftmadrass í gær, svo nú er farið að fara aðeins betur um okkur en við hlökkum til að geta mublað okkur aðeins upp þegar fram líða stundir og innkoma fer að verða stöðug og töluvert hærri en hún er í dag.
Jæja, læt duga að sinni.
Bestu kveðjur frá okkur öllum á Edvard Thomsens vej.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 3. mars 2009
Til hamingju með afmælið elsku Erian/mamma
Já, þá er Erian bara orðin stór, orðin þrítug
Elsku Erian/mamma, við hér óskum þér hjartanlega til hamingju með stóra afmælið þitt í dag, hlökkum til að fá þig heim og vonandi verður dagurinn sem skemmtilegastur (vona þú verðir ánægð með matinn sem ég ætla að elda handa þér
)
Það eru orðin tæp 14 ár síðan við kynntumst fyrst,tæp 13 síðan við fórum að búa og næstum 12 ár síðan við eignuðumst okkar fyrsta barn. Finnst nú bara eins og það hafi verið í gær sem ég sá hana fyrst en svona er þetta, tíminn flýgur.
Það hefur auðvitað gengið á ýmsu í 13 ára sambúð og hjónabandi en ég held ég geti sagt að við höfum aldrei verið eins ástfangin, hamingjusöm og samhent eins og akkúrat núna, long may it continue.
Til hamingju með afmælið ástin mín, sjáumst í kvöld.
Einar Sveinn, Gummi, Alexandra, Elmar Ingi, Elísa og Lóla.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 17. febrúar 2009
Skítakuldi en lífið gengur sinn gang
Úti er skítakuldi síðustu daga og í gær kom smá snjór. Gummi og Alexandra notuðu tækifærið og skruppu út að gera snjókall.
Já, það er skítakuli í Köben þessa dagana, aldrei samt eins kalt eins og var í morgun, brrrrrrrrr.
Ekki nóg með að það hafi verið kalt heldur þurfti metrókerfið að klikka líka svo við lentum í algerum vandræðum, fyrst Gummi og Alxandra á leið í skólann og svo Erian á leið í sinn skóla og loks ég og Elísa á leið í leikskólann. Eitthvað óhapp hafði orðið milli Nörreport og Kongens Nytorf þannig að stórir flöskuhálsar mynduðust.
Krakkarnir komust í skólann en voru eitthvað of sein, Erian komst upp á Christianshavn en varð að taka leigubíl þaðan í skólann. Við Elísa komumst hvorki lönd né strönd svo við fórum bara í Fötex uppá Amagerbro en neyddumst svo til að taka taxa heim, ekki smuga að komast í metróinn því þar niðri var haugur af fólki að bíða og ekki leist mér á það. Svo við bara gáfum leikskólanum frí í dag og erum í rólegheitunum heima Svona getur þetta verið í stórborginni, ef lestarkerfið klikkar þá fer allt í hakk.
Annars er það að frétta að ég var að vinna í síðustu viku heila 4 daga, mánudag til fimmtudags og rakaði inn 25 tímum. Vandinn við þennan leikskóla er að hann er svo lítill, ekki nema 6 eða 7 starfsmenn þarna svo forföll eru ekki eins tíð eins og á stærri leikskólum. Annars er þetta bara fjandi snúið að láta hlutina ganga upp útaf staðsetningunni á leikskólanum hennar Elísu, eiginlega passar engin vinna fyrir mig nema eitthvað sem byrjar ekki klukkan 7 eða 8 á morgnana. Það er líka snúið fyrir Erian að fara með stelpuna því þá lendir hún i því að koma of seint í skólann. Ofan á allt þá er greinilegur samdráttur á atvinnumarkaði hér þannig að það er ekki létt að finna vinnu og það eitthvað sem passar okkar prógrammi. En sjáum hvað setur, ég sæki um á fullu, 2-3 umsóknir sem ég sendi út daglega en afar dræmar undirtektir.
Annars gengu þessi 4 dagar vel fyrir sig og ég held að þeim þarna á Filipo sogns leikskólanum hafi litist ágætlega á mig, alla vega nóg vel til að biðja mig að koma meira en einn dag og ég á von á að það verði hringt í mig ef einhver meldar sig veikan eða þarf frí. Í raun þarf ég að hafa um 20-25 tíma á viku í vinnu ef vel á að vera, námslánin hennar Erian duga ekki einu sinni fyrir leigu og skólagjöldum hvað þá meira. En við reynum að stressa okkur ekkert yfir þessu, hlutirnir taka sinn tíma og manni verður alltaf eitthvað til, sagði amma Magga.
Annars var ég að mála alla helgina, keypti ódýra málningu, heila 18 lítra og gat málað 2 umferðir á stofuna og borðstofuna svo aðeins hefur minnkað reykingafýlustybban sem hékk hér yfir. Einnig er Erian búin að þvo gardínur sem voru skildar eftir hér svo þetta er allt í áttina. Um leið og úr rætist með vinnu og innkoma verður stöðug þá verður sko keypt málning aftur og restin máluð, herbergin, bað, gangur og eldhús, ekki spurning.
Við höfum það bara nokkuð gott hérna á Edvard Thomsensvej, mikill munur að hafa nóg pláss en okkur vantar reyndar nánast öll húsgögn ennþá, en það kemur með tímanum.
Læt þetta gott heita að sinni, kveðjur bestar,
Ps, jibbíkæjeij,Filipo sogns leikskólinn var að hringja akkúrat núna og biðja mig að vinna í næstu viku, mánudag, þriðjudag og föstudag frá hálf tíu til fimm. Sko,manni verður alltaf eitthvað til, 22,5 tímar í hús í næstu viku
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Uþþuþvuzz!
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 13635
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


einarsveinnogerian
majaogco
jakobk





