Smá blogg

Sunnudagur og rétt að hripa nokkrar línur.

Úti rignir, gott að fá hana eftir snjókomuna og frostið í vikunni sem leið, en í gær var þessi brakandi blíða líka, bara sól og fuglar sungu í heiði og krakkarnir heillengi úti við í gær að leika sér.

Nú situm við hinsvegar yfir heimanámi, tekur nú fljótt af að afgreiða Elmars heimanám og Alexandra er svo sjálfstæð að hún gerir sitt bara á eigin spýtur en við Gummi þurfum að puða yfir þessu á annan klukkutíma.  Nú liggur greyið kallinn yfir einhverri orðflokkagreiningu, greina orðflokk, kyn, tölu og fall og mesta furða hvað hann getur bara sjálfur í þessu.

Sjálfur er ég með feitan bunka í töskunni af stafsetningaræfingum og öðru góðgæti sem ég þarf að fara yfir, er bara engan veginn að nenna því.  En, dríf mig í þetta eftir hádegi, þegar heimanámi barnanna er lokið.

Enginn smiður mættur hjá okkur enn, svo við búum við það að gera þarfir okkar í þvílíkri fúkkalykt að það liggur við að það líði yfir mann á kamrinum.  Reyndar lofaði hann að koma eftir helgi og ég ætla sko rétt að vona að hann standi við það.

Nú líður að því að Erian komi til okkar í fríHeartSmile og við erum sko farin að hlakka til að fá hana til okkar.  Stoppar alveg 10 daga og við ætlum bara að njóta þessara daga, saman sem fjölskylda á ný.

Næsta vika handan við hornið og vonandi verður þessi vika betri í íslensku efnahagslífi en sú síðasta og krónan bara verður að rétta sig af, annars er t.d. afar erfitt fyrir námsmenn eins og Erian að hreinlega lifa af á þessum blessuðu lánum.  En ég hef fulla trú á að þetta lagist og verður komið réttara ról á þessi mál þegar við förum til Köben í janúar, það bara verður að gerast.

En læt þetta duga að sinni, heimilisverkin bíða sem og skólavinna.

Kveðjur bestar

Einar Sveinn og börn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Knús til ykkar i Gardinum já og vona ad gud gefi ad krónan fari ad styrkjast..madur ordin pinu leidur á ad éta úr nefinu á sér

María Guðmundsdóttir, 5.10.2008 kl. 12:27

2 identicon

Vid vonum thad besta fyrir alla, hrikalegt med svona peningavesen. Heppin ad madur eigi ekkert sem er inná banka. Vonandi verdur allt i fina brádlega. Kramar Torunn

Torunn Erlingsdottir- Larsson 5.10.2008 kl. 14:36

3 identicon

Takk fyrir bloggið. Nóg að gera í heimanámi og heimilisverkum eins og gefur að skilja. Já þessi peningamál þjóðarinnar hljóta að skýrast ekki seinna en á morgun og vonum það besta. En bara góða viku framundan og bestu kveðjur úr Njarðvík

Pabbi 5.10.2008 kl. 18:02

4 identicon

Knús til ykkar, ástin mín

Ég tal dagana.

Erian 6.10.2008 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Uþþuþvuzz!

Höfundur

Einar Sveinn Guðmundsson
Einar Sveinn Guðmundsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • golf og grill með kennurum 033
  • 101_0132
  • 17.júní 2004
  • 17.júní 2004
  • 562284 473572602656489 100000112607813 2014421 611042547 n

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 821

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband